Sigrún Einars
Grafískur hönnuður / Myndskreytir / Vöruhönnuður / Leiðsögumaður
2008 - 2011 Iðnskólinn í Hafnarfirði.
Vöruhönnun.
2002 –2003 Leiðsögumannaskóli Íslands.
Leiðsögumaður, enska.
1983 – 1987 Parsons School of Design in Paris.
BFA Grafísk hönnun.
1981 – 1982 Háskóli Íslands.
Danska, bókmenntir, trúabragðasaga.
1980 – 1981 Grundtvigs Höjskole, Danmörk.
Bókleg og verkleg fög á ýmsum sviðum.
1976 – 1980 Fjölbrautaskólinn Ármúla.
Stúdent frá Viðskiptasviði.
Meiri upplýsingar um mig:
Tölvukunnátta
Ég var í hópi fyrstu grafísku hönnuða á Íslandi sem tileinkaði sér tölvuvinnslu árið 1990. Ég er vel tölvulæs og fljót að tileinka mér nýja tækni og forrit. Ég hef reynslu af ýmsum samfélagsmiðlum ss. umsjón vefsíðna í SmartWebber, set upp vefsíður í Wix og Word Press kerfunum. Ég vinn í fyrirtækjaumhverfi Facebook, Pinterest, Twitter og Linkedin.
Ég vinn á eftirfarandi forrit:
Indesign
lllustrator
Photoshop
Word
Excel
Powerpoint.
Tungumálakunnátta
Íslenska: Tala, les og rita mjög vel.
Enska: Tala, rita og les mjög vel.
Danska: Tala, les og rita vel.
Námskeið
Markaðssetning á Netinu
Kristján Már Hauksson og
Guðmundur A. Guðmundsson.
Facebook sem markaðstæki fyrir lengra komna.
Endurmenttun HÍ, Maríanna Friðjónsdóttir.
Endurmenttun HÍ,WordPress II framhald.
Áhugamál
Listir - hönnun - bókalestur - matarboð - teikning - handverk - góð heilsa - óhefðbundnar lækningar - mannshugurinn - litir - mikilvægi hreyfingar - skemmtilegt fólk - óvenjuleg hugsun.
Eiginleikar
Fljót að hugsa - hugmyndarík - úrræðagóð - skipulögð - öguð - hugsa út fyrir rammann - mannblendin - auðvelt með að tjá mig - fyndin - lífsglöð...en...get verið að æsa mig yfir hegðun annarra í umferðinni! - ég er hreinskilin - opinská og afar stundvís ...en... en get verið óþolinmóð gagnvart (að mér finnst) skilningslausu fólki -
Ég er samviskusöm og á auðvelt með að vinna með fólki bæði í hóp sem og að leiða hópa.
Hvar og hvernig vinnustaður?
Mig langar að vinna hjá fyrirtæki annaðhvort í markaðsdeild við innanhús grafíska vinnu og markaðstörf, eða í starfsmannadeild við skipulagningu ferða, móttöku á erlendum gestum og ferðir með þá, fyrirlestra/kennslu td. um gerð power point glæra, kenna að gera einfaldar heimasíðu (eins og þessa). Mér þætti ekki verra að vera í hlutastarfi eða með sveigjanlegan vinnutíma. Sem sagt - sambland af almannatengslum, hönnunar- og markaðsstarfi.Ég gæti líka alveg hugsað mér að vinna þetta allt í einni stöðu, svona multi tasker :)
ATH - ATH - GÓÐ HUGMYND:
Ég get komið tímabundið inn í fyrirtæki og gert það sem gera þarf í grafískri hönnun. Ég kæmi með mína eigin fartölvu með þeim sértæku forritum sem til þarf og tengi mig bara við tölvuskjá á staðnum.
Ekki flókið það!
2010 - present
2010 - present
2011 - 2012 Cooldesign.is. – Vöruhönnuður
Stofnaði mitt eigið hönnunarfyrirtæki; cooldesign.is. Hannaði, smíðaði og framleiddi eingöngu mínar eigin vörur, setti upp vefverslun sem og seldi vörunar í ýmsum verslunum, ma. Kraum, Aurum, Rammagerðinni, Snorrastofu, Kokku, Mýr, Perlunni, Minju og Líf og List.
1994 – 2012 Sjálfstætt starfandi – Grafískur hönnuður.
Viðskiptavinir voru bæði stofnanir og einstaklingar og umfang verkefna mjög mismunandi en ég sá um að framkvæma alla þætti eins og gert er á auglýsingastofum. Meðal viðskiptamanna: Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Félagsþjónusta Reykjavíkur, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Ríkissaksóknari, Menntasvið Kópavogsbæjar, Velferðarsvið Kópavogsbæjar, Faxaflóahafnir, Landmótun, Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna. (Branding)
2006 - 2008 Skautafélag Reykjavíkur/ íshokkídeild
Ég sá um allan daglegan rekstur og fjármál. Sá um samskipti og upplýsingaflæði við þjálfara, iðkendur og foreldra. Gerði allt auglýsinga- og markaðsefni. Aukning iðkenda á þessu tímabili var 35%.
2003 - 2004 Sjálfstætt starfandi – Leiðsögumaður.
1992 - 1994 AUK ehf. auglýsingastofa – Grafískur hönnuður.
1992 - 1994 Ydda ehf, auglýsingastofa – Grafískur hönnuður.
1981 - 1982 Vuggestuen Willerupgaard, Kaupmannahf. – Aðstoðar fóstra.
Ég hef gaman af að læra!
Eftir stúdentspróf (semidúx ☺ ) af viðskiptabraut - hélt ég til Hilleröd í Danmörku í Grundtvigs Folkehöjskole, lýðháskólar eru algjör snilld, þar lærir maður margt og ekki síst að tala dönsku! Enda fékk ég strax vinnu í Köben eftir skóla sem starfsmaður á leikskóla.
En ég hugðist nú alltaf mennta mig áfram og valið stóð á milli viðskiptafræði eða grafískrar hönnunar! - já ég svo sver það, - sótti því bæði um í HÍ og Parsons og var svo assgoti góð að komast inn í Parsons The New School for Design, sem er bandarískur listaháskóli og að auki einn af 5 bestu hönnunar-skólum í USA! - yes, true... hér getur þú lesið nánar um málið;http://www.businessinsider.com/the-worlds-25-best-design-schools-2012-11?op=1
Eftir heimkomu vann ég lengst af hjá Yddu auglýsingastofu (nú EnnEmm) og landaði þar nokkuð mörgum AAÁ lúðrum. Síðastliðin tuttugu ár hef ég starfað sjálfstætt við mjög fjölbreytta hönnun og komið að auki við í innanhús- og garðahönnun!
Skömmu eftir síðustu aldamót dreif ég mig í Leiðsögumanna-skólann og útskrifaðist þaðan 2003. Frábært nám sem sannar-lega hefur komið sér vel.
Frá 2008 – 2011 bætti ég svo við mig námi í vöruhönnun frá Iðnskólanum í Hafnarfirði og stofnaði cooldesign.is í kjölfarið.
Af framansögðu má álykta að ég hafi gaman af að læra... sem ég hef!
Smá meira um mig.
Ég er óhrædd að takast á við ný verkefni, – ég er skipulögð og praktísk, ústjónarsöm og vinn hratt. Já og talandi um hratt... ég eignaðist tvo stráka forðum daga á tveimur árum, skellti upp einu húsi í leiðinni og nýt þess enn að búa í því ☺
Strákarnir mínir fengu ungir áhuga á íshokkí, og dvöldumst við í Skautahöllinni löööööngum stundum, sem endaði á að ég tók að mér framkvæmdastjórn og gjaldkerastarf íshokkídeildarinnar í rúmt ár og þóttist víst vel til takast, amk. jókst þátttaka um 35%. ... jú, jú – það hjálpaði að hafa góðan og markaðsþenkjandi grafískan hönnuð í stjórastólnum. ;)
Ég er svo heppin að vera komin með svona mikla reynslu og lífið bíður mín með nýjum tækifærum. Kannski mín reynsla geti hjálpað þér? - tékkaðu á því og sláðu á þráðinn til mín í síma 699-1179.
Hlakka til að heyra í þér :)
Ferilskrá
Starfsferill
Ég - Sigrún
Ef þig langar að vita meira um minn bakgrunn kíktu á Nánar um mig!