top of page

Með því að hittast og fara yfir málin!

Eins og þú getur lesið um bæði í Ferilskrá   og Nánar um mig   - þá hef ég mikla og góða reynslu af hönnun á ýmsum sviðum. Ég hef verið í þessum bransa næstum í aldarfjórðung!! ... og kann því orðið alveg ótrúlega margt, og þekki marga innan bransans.

​

​

Fyrirtæki, bæði lítil og stór, þurfa oft aðeins á tímabundinni að stoð að halda. Það eru miklar skuldbindingar að ráða launþega og svo sértækur starfskrafur sem grafískur hönnuður er mjög oft látið sitja á hakanum. En kannski ertu að tapa pening einmitt á því? Ã‰g býð þá þjónustu að koma á staðinn til þín með tölvuna mína og við gerum það sem gera þarf á þessu sviði. Ég er með víðtækt tengslanet, ég þekki vel til hvar er hægt að framleiða mismunandi auglýsingavörur. Ég get komið að hönnun á sýningarstöndum, sýniningum eða hvað sem tengist kynningu á þinni vöru. Fyrirtæki í dag verða að hafa vefsíðu! alveg eins og þau verða að hafa síma. OG - vefsíðan þarf að virka, það er enn verra að hafa lélega vefsíðu heldur en enga! Fólk í dag verður bara fúlt og ákveður að skipta ekki við slíkt fyrirtæki. Einfaldar vefsíður eru eins og nafnspjald á netinu.

Facebook er líka mjög öflugt og gildir það sama og með vefsíðu, fyrirtæki verða að vera memm!

Ég get sett upp facebooksíðuna þína og fyrstu póstana og sýnt þér hvernig þetta virkar, eða ég get sett upp einfalda og ókeypis vefsíðu (eins og þessa sem þú ert að lesa), það er svo margt hægt að gera. Nú svo kenni ég þér hvernig þú átt að uppfæra fésið þitt og vefsíðuna, nú eða tek það að mér samkvæmt okkar samkomulagi.



 

Þú skilur núna hversu hagkvæmt það gæti orðið þér að hafa samband við mig og hittast? Þú veist að engin vara selur sig sjálf, og það er hræðilega sorglegt að hafa lagt allan þinn metnað og fjármuni í viðskiptahugmynd en enginn veit af þeirri góðu hugmynd.



Svo prufaðu bara að slá á þráðinn til mín í síma 699-1179 eða sendu mér línu á sigruneina@internet.is. Það kostar ekki neitt að hittast á fyrsta fundi :)



Hlakka til að heyra frá þér,



Njóttu dagsins og góð kveðja











ps. Þessa vefsíðu setti ég upp alveg sjálf og hún kostar ekki neitt! Ef að þú vilt fá nánari upplýsingar um það þá vertu ekki feimin(n) við að hafa samband.

​

bottom of page